Bloggfærslur mánaðarins, október 2010
Spennandi
16.10.2010 | 08:10
Með því skemmtilegra er ég geri í vinnunni er að taka nýjar bækur uppúr kössunum. Þegar ég kom úr kaffi í einn daginn, fyrir dulitlu síðan, beið eftir mér forvitnilegur kassi. Hum, hugsa ég, hvað er nú að koma? Kíki á kassann ... aha bókasending ... gaman, gaman. Opna kassann varlega, gægist ofan í hann nei vá muldra ég þessi er flott. Tek eina bók upp úr kassanum og skoða í krók og kring ... flott þessi maður. Tek restina af bókunum upp úr kassanum. Hvað skyldi hún nú kosta spyr ég sjálfa mig. 2990,- 3990,- ... best að gá. Æææ nei, ekki búið að skrá hana í kerfið hjá okkur ... bömmer. Mikið væri nú gaman að skoða eina. Þyrfti nú kannski að hafa eitt sýnishorn af henni, æi ég tími því varla, hún verður bara rykfallinn og svo kemur öskufok og vesen. Tvístíg smá stund, en mig langar að skoða hana ... úbbs þarna kom alveg óvart smá gat á plastið utan um hana. Nei þetta er ekki hægt, hafa gat á plastinu ... ussum uss. Tek plastið utan af henni og byrja að skoða, nei vá maður flottar myndir, ekkert smá flottar
Hvað ertu að skoða Radda? Heyrist sagt bak við mig. "Ha ég? jú sko ljósmyndabókina um Jökulsárlón" .... "þrusuflott bók maður."
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt 24.11.2010 kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar er Erlendur?
9.10.2010 | 12:55
Árið 1997 kom út skáldsagan Synir duftsins eftir Arnald Indriðason. Þessi bók rataði fljótlega í hendur mínar og eftir lestur hennar hef ég verið einlægur aðdáandi bóka Arnaldar. Á hverju ári, síðan þá, hef ég beðið eftir bók hans með mikilli eftirvæntingu. Flestar sögur Arnaldar fjalla um lögreglumennina Erlend Sveinsson og hans hundtryggu aðstoðarmenn, Elínborgu og Sigurð Óla. Þessar sögupersónur Arnaldar urðu fljótt heimilisvinir hjá mér og annarra aðdáanda hans.
Erlendur, þessi skemmtilega fúllyndi lögreglumaður, heillaði mig strax uppúr skónum. Það er eitthvað við Erlend sem fær mann til að elska hann, hata og vorkenna honum allt á sama tíma. Eftir því sem bókunum fjölgar fær maður betri innsýn í líf Erlendar og það hvernig hann varð þessi einfari er les bækur um mannshvörf og hrakninga manna hér á landi. Erlendur minnir mig stundum á einhvern en ég geri mér ekki grein fyrir hver það er, kannski er það bara þessi dæmigerði miðaldra, lokaði íslendingur. Nú hefur bruggið svo við að í síðustu tveimur skáldsögum Arnaldar hefur engin Erlendur verið og þar er skarð fyrir skildi. Játa ég það hér og nú að ég er virkilega farin að sakna Erlendar og því ætla ég rétt svo að vona að Arnaldur geri mér ekki þann óleik að koma með þriðju bókina í röð án Erlendar.
Því spyr ég: Arnaldur, hvar er Erlendur?
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt 24.11.2010 kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)